STÚDENT!!!
Ég er búin að útskrifast!!! Til hamimgju með það Gudda, dugleg stelpa!Looking good....
Jæja vá þetta er orðið svona blogg sem gerist eitthvað spennandi einu sinni í mánuði eða svo.... ÉG er frekar slöpp og ég veit það, en stundum hefur maður
bara svo mikið að stússast annað en að rita æviágripin
Mikið búið að gerast, fór á hið árlega jólaboð Samskipa á föstudaginn nema hvað allir á Kaffi Reykjavík starfsfólk og kúnnar, afar glæsilegt í alla staði og maður fann jólafílinginbeint í æð með öll kertin fyrir utan og lúðrasveitargaurana að spila kristmass songs :)
En svo var bara Tapas, það var svo frábært að djamma með öllu fólkinu mínu enda vinn ég bara með toppfólki :)
Vorum að á Tapas seinni parts kvöldsins, og af hverju át ég kengúru?? ÉG bara sá litla kengúruunga í poka í huga mér það sem eftir var kvöldins en jæja svo var bara allir á REX, og það fóru allir þangað...líka Karen :)
Gudda talaði bara ensku um kvöldið, fannst það bara henta mjög vel þar sem það var svo mikið af mínum erlendu samstarfsmönnum með okkur. Nennti bara ekki að tala ensku og íslensku til skiptis.... This is Guðrún calling you from Samskip in Iceland.... Þessi seting kom mér langt ....
En svo bara bæjarnins bestu EIN seint um síðir, og er enn að jafna mig á því af hverju ég fór ekki á Hlölla, svikari svikari
En magnað kvöld í alla staði, takk allir fyirr að elska mig !
En svo var bara sofið mest allan sunnudaginn.... American stæl læknar öll sár :)
En Gudda á að vera að læra.... er bara með mestu andleysu heimsins á herðum mér, er bara að stússast í hesthúsinu öll kvöld, það er orðið svo fínt hjá okkur Badda að það er ólöglegt að koma ekki í kaffi til mín, og svo tek ég inn eftir 13 daga vúhú :) En læri læri, húfan á leiðinni... Gotta gó
Gudds
I know... I know....
Jæja gott fólk, þar sem ég er formlega orðin ömurlegasti bloggari landins þá ákvað ég nú að skella inn einni ofurfærsla úr mínu frábæra lífi....Úff margt búið að gerast og ég margt búin að brallast síðan síðast...
Ég og dúlluspaðinn minn skelltum okkur til Barcelona fyrr í mánuðinum, árshátíð ODR var haldin þar og við ákváðum að dvelja þar viku langt, svona aðeins til að hlaða rafhlöðurnar fyrir komandi vetur. Ferðin snilld í alla staði. Skoðuðum mikið og ferðuðumst um alla borgina. Gudda heimsborgari.is ferðaðist um allt með neðanjarðarlestum og tók aldrei leigubíla, ég er auðvitað rosa stolt af þessu framtaki mínu, því þeir sem þekkja til, er ég ekki mikið fyrir að redda mér með almenningsfarartækjum... hver man ekki eftir Guðrúnu takandi leigubíla í skólann í RVK þar sem hún þorði ekki með strætó!!! En hvað um það, ég varð snögglega ástfangin af þessari borg, ekki annað hægt, frábær matur, menning, listir og mannlífið æðislegt. Var heilluð frá fyrsta degi. Mikil afslöppun þá vikuna.
Hver veit nema ég skelli inn nokkrum myndum af mér og Badda spóka okkur um í góða veðrinu.... Hitti samt ekki MR Gudjonsen, var samt stöðugt að leita....
En alltaf gaman að koma heim úr útlandinu, lenda á klakanum og flugstjórinn ný búin að segja "Já það er gott veður á Íslandi, 2 stiga hiti " Já takk frjósið ekki í hel!! En alltaf gott að koma heim, átti frekar bágt án Goða litla en mér skildist að hann saknaði okkar ekkert mikið, ekki nema von, yngsta barnabarnið fékk auðvitað pulsur, bjúgur og slátur í öll mál, og var þar af leiðandi bara að fíla nokkuð vel að við værum ekki heima!!!
En svo komum við heim síðasta mánudag fórum daginn eftir og keyptum okkur eitt stykki hesthús :)
Til hamingju með það, þannig að núna klæjar mig í alla putta og allar tær að fara að taka inn.... En núna getið þið komið í kaffi í nýja hesthúsið mitt í Mosfellsbænum, alltaf heitt á könnunni hjá Guddsen og Bjadda hestasveini :)
Og talandi um hrossabras, það sem bjargaði náttla heiminum þennan mánudag að þá kom Guggs heim á ný, hætt að vera heimsborgari í Osló og ætlar að verða Íslendingur aftur, mér til mikillar ánægju. Var hálf vængbrotin án þín sykurpúðla.
Nú er stutt í að við þeysum saman í reiðtúrunum góðu, syngjum Sprett og njótum þess að vera til. Það toppa það víst fáir að fara tvær í hestferð með hvítvín og osta í hnakktöskunni.
En já á víst að vera að læra... þar sem hvíta húfan er á heimleið. Hún er áætluð í höfn þann 18. desember.... Gaman af því :) Svo er Desember líka besti mánuðurinn, þá fær Gudda sinn árlega ólæknanlega jólaormm og tapar sér í jólanamminu, jólaglögginnu, jólalögunum, jólaskrautinu og jóla jóla jól..
Þökkum fyrir að Bjarni er ekki mjög netvænn maður sem les æviágripin mín, enda hefur hann verið þekktur fyrir að taka sér hlutverk "Trölla" um þetta leyti. Þeir sem ekki vita, þá er það græni ljóti kallinn sem stal jólunum!!!
Jæja er orðin óttalega andlaus, hef svo mikið að segja en veit svo sem ekki hvað. En þeir sem vilja vita eitthvað meira verða bara að koma í kaffi og köku í Þokkabakkann; I'll be there... Ses lömbin mín
Gudds
Hálslaus...
Jæja long time no see... var frekar pirruð þegar allt flaug út þarna um daginn.. en taka tvö gott fólk.
Helgin mín var bara rosa fín, fór á föstudagskvöldið til hennar Gullu minnar, hef ekki hitt hana svo óendalega lengi og var löngu komin tími til. Við áttum alveg magnað kvöld, kjöftuðum út í eitt því eins og Guðni myndi orða það, þar sem tvær blaðurskjóður koma saman, þar er talað. Gulla mín auðvitað grand á því og var að elda tartalettur þegar ég kom, jólalyktin barst á móti mér fram á gangi :)
En kvöldið var frábært í alla staði fyrir utan eitt óhapp.... Hún Gulla mín rak sig í rauðvínsglas á borðinu (stærstu gerð by the way) og ætlaði svo að vera snillingur og bjarga glasinu með fótunum, en það fór sem fór og Guðlaug sparkaði eitt stykki fullu rauðvínsglasi í mig og Guðrún sem var eitt sinn edrú í hvítum bol var það ekki lengur.
Fötin mín voru ÖLL rauð, og brjóstin og andlitið og bara name it, ég fékk alveg heilan sopa upp í mig! Guð sé lof að löggan stoppaði mig ekki á leiðinni heim þar sem ég angaði eins og vínakur í Frakklandi :) En þetta gerði kvöldið bara enn eftirminnilegra, takk fyrir kvöldið gullið mitt og já rauðvínið :)
En svo var haldið upp í nes á laugardaginn og æskustövarnar heimsóttar, við Baddi fórum á "skytterí" sem var alveg magnað. Goði "veiðihundur" er reyndar búin að ákveða að vera ekki veiðihundur, Bjarna til mikillar mæðu. Hann tók upp á því að finnast byssur hræðilegar og vill ekkert vera nálægt þessu. Hann er er meira segja "hræddur" við byssuskápinn heima....hahaha en ég er búin að fatta þetta, hann vill mikið frekar vera smalahundurinn minn eins og sást best á skytteríunu á laugardaginn, hann hljóp og smalaði öllum rollunum saman og hafði mikið gaman af. Greinilega búin að gleyma atvikinu í sumar þegar rollan stangaði hann í rassinn þannig að hann skaust upp í loftið. Hélt að hann væri hættur að reyna að fá lömbin til að leika við sig. En allt betra en að vera veiðihundurinn hans Badda...
En skelli inn myndum á eftir frá skotæfingunni þar sem Guðrún var yfirburðar besta skyttan :)
En sunnudagurinn, vorum hele dagen að hjálpa Pabba gamla í vinnunni, borða hangikjöt hjá mömmu og svo bara back to the höfuðborg.
En fyrirsögnin hálslaus er lýsingin á mér þessa dagana, þar sem hálsinn á mér er fastur, pikkfastur Ask no more.....
Guddi sem getur bara horft til vinstri
URRRRRR
Ég var búin að skrifa heilan kafla í ævisöguna mína hérna en það hvarf !!! BLESSOfsakćti !!
Það er massa neseril og hóstasaftsfyllerí í gangi hérna í Hrísrimanaum. Sem þýðir bara eitt, Guddi er ennþá veikur.
En vissuð þið að ein aukaverkunin af því að taka inn of mikið að neseril nefúðanum er ofsakæti?? Hvað er það? Hef nú bara ekki heyrt þetta orð, og væri bara alveg til í að fá þessa aukaverkun, hún allavega hjómar mjög vel :)
Lasin heima er það leiðinlegasta sem Guðrún gerir, sérstaklega þegar er búið að vera neyðarástand hérna, rafmagnið fer af íbúðinni þegar það nennir ekki að vera lengur!!! Í gær fór rafmagnið æði oft hérna og Guðrún fékk alltaf panikk atakk því hún sá bara svart og náði að stíga á hundinn sinn í hvert skipti. Aumingja Goða finnst þetta ástand á heimilinu frekar ömurlegt, ekki nóg með að þurfa að liggja og gera ekki neitt með mér allan daginn, þá stíg ég á hann reglulega, hann liggur í mótmælaskyni framm í gangi og horfir á mig með fýlusvip allan liðlangann daginn. Ég svo sem skil hann að hann vilji ekki liggja við fæturnar á mér....
En hvað um það, er ferlega ánægð með nýju síðuna mína fyrir utan það að það tekur klst að setja eina mynd inn!!! En náði samt að búa ti favorite people möppu með öllum þeim sem ég elska. Njótið krakkar. En gleðifréttir það er komið nýtt sófasett í kotið, skellti mér á þennan magnaða leddara sem var kærkominn því eins og flestir vita þá át Goði gamla sófann minn og var hann orðin frekar þreyttur greyið. Þannig að gott fólk, það er alltaf kaffi og nammi hjá Guddsen í rimanum, og núna er nýung í boði, NÝR ofur þægilegur leddari !!! Hver stenst það! Gudda fékk sófasett og Baddi byssu, fábær díll þarna á ferðinni. Nema hluturinn minn dregur óneitanlega meira fólk að, verð vinsælli fyrir vikið :) Hvort hljómar betur "Viljiði koma að slappa af í nýja sófanum?? eða "Hver vill koma að skoða nýju byssuna mína...?? Dö?
En rosalega er ég húkkt á Beverly Hills, ég lifði fyrir þessa þætti héraa í denn, og áttum við Ester allt með Beverly, myndir, púða, töskur, límmiða.... og þá fannst manni allt þetta fólk mest svalasta fólk í heimi, flott föt og sonna... en núna
eru þau því miður mest hallærislegasta fólk í heimi en hvað, nei nei Gudda má bara ekki missa af þætti, held bara að það hafi kveiknað einhver gömul ást á Dylan... Ester var meira fyrir Stevie á þessum tíma :) gaman að þessu. Þetta verður án efa skemmtilegt innslag í ævisögunni, punkta niðrur gott fólk punkta niður...
Farin að horfa á Beverly.......
Gudda ofsakáta
Lasin bangsi
Minns er heima, er með flensu og er að drepast.
Jæja ég er nú ekki ofur bloggari landsins, en stefni samt af því að fá jafn margar
heimsóknir og Unnur Birna, og að síðan mín verði á forsíðu mbl.is eins og hennar
"Gudda bloggar" hversu gaman væri það? Kannski verð ég að verða Miss heimur fyrst, en þá fer ég bara í það mál :) ![]()
En hvað um það, það er svo sem ekkert mikið búið að skeðast, nema Gugga mín, hægri tásan mín er farin frá mér og flutt til Osló :( Er búin að eiga frekar bágt og syng nýja Nylon lagið hástöfum fyrir hana og vona að hún heyri í mér.
Sakna þín Guggs, kökkúr, snökkt, hor....
En talandi um ofur ofur, þó ég sé kannski ekki úber bloggari, þá er ég búin að finna mér nýtt þíng sem ég er skó úber góð í !!! Ég er skvassmeistari, núna vaknar Guddi svo snemma á morgnana og spilar SKVASS áður en hún fer í vinnuna.
Við erum að tala um að það er líkamsræktarsalur og skvasssalur í vinnunni minni
og það væri hneyksli og skömm að ætla að vinna þarna lengur án þessa að nota þetta! Þannig að ef þið viljið spila skvass við tækifæri þá er ég maðurinn til að tala við! Orri sem er meðspilarinn minn þarf að þola öskur og ofur spaðasveiflur frá mér, ég er ennþá pínu hrædd við að fá boltann í andlitið og verst því með því að öskra mjög hátt! Gaman af því :)
En núna set ég inn myndir, bara svona nokkrar af mínu og mínum
Kannski ég setji inn svona uppáhaldsfólkið mitt albúm, og myndir af öllum þeim
sem ég elska og dái. Sniðugt.
Miss Guðrún
I'm back...once again..
Hvaða hvaða jæja þá, mætt í netvveröldina enn einu sinni og aldrei eins spræk.
Talvan mín var að koma úr alsherjar meðferð, þar sem hún er búin að vera lasin í nokkra mánuði.
Gudda er sem sagt búin að vera netlaus í eitt stykki hálft ár og ætlar hún að fagna þeim tímamótum að vera komin með netið með því að opna æviágrip sín á ný...eflaust mörgum til mikillar ánægju....
Ég veit að það eru nokkrir þarna úti sem ætla að græða á tá og fingri á mínu merkislífi og gefa út ævisögu mína... þannig að gott fólk hérna kemur þetta
Guddi